Reykjavik University


The following announcement, about a faculty position in mathematics at Reykjavik University, is in Icelandic only, because the ability to teach in Icelandic, already in the fall of 2006, is an absolute requirement.

Staða í stærðfræði við HR


Háskólinn í Reykjavík vill ráða stærðfræðing til að sinna kennslu og rannsóknum. Viðkomandi á að verða leiðandi í uppbyggingu fyrstu námskeiða í stærðfræði fyrir tækni- og verkfræðinema, í samvinnu við aðra kennara deildarinnar, og myndi sjálf(ur) kenna þau námskeið til að byrja með.

Við erum að leita að stærðfræðingi sem annað hvort hefur þegar markað sér sess í rannsóknum á alþjóðavettvangi, eða hefur augljóslega burði til þess. Æskilegt er að rannsóknirnar séu á einhverju sviði sem tengist hagnýtri stærðfræði. Markmið skólans er að byggja upp nokkra rannsóknahópa í stærðfræði á næstu árum.

Sá sem ráðinn verður þarf, auk þess að vera öflugur eða efnilegur í rannsóknum, að vera áhugasamur og metnaðargjarn kennari og vilja vinna með öðrum kennurum, bæði stærðfræðingum og öðrum, að þróun kennslunnar, með það fyrir augum að hún verði framúrskarandi og gagnist nemendunum vel.

Nauðsynlegt er að geta kennt á íslensku.

Upplýsingar gefur Einar Steingrímsson, einarst@ru.is. Umsóknir skal senda honum, á rafrænu formi, í seinasta lagi 15. maí 2006. Vinsamlegast sendið ferilskrá, þar sem menntun, kennsluferill og rannsóknaferill koma fram. Einnig er ráðlegt að láta senda meðmælabréf, bæði um kennslu og rannsóknir. Það sem ekki er hægt að senda á rafrænu formi má senda með pósti til Einars Steingrímssonar, Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík. Þó er mikilvægt að senda sem fyrst rafræna umsókn, og geta í henni þess sem sent verði með öðrum hætti.

Athugið að við munum aðeins ráða í þessa stöðu ef við fáum hæfan umsækjanda sem hefur hug á framtíðarstarfi. Að öðrum kosti munum við halda áfram að leita. Auk þess eru líkur á að ráðnir verði fleiri stærðfræðingar á næstu árum. Því eru fyrirspurnir velkomnar frá þeim sem gætu haft áhuga á starfi hjá okkur á allra næstu árum.

Svolitlar upplýsingar um stærðfræðirannsóknir við HR er að finna á www.math.ru.is, en nú þegar er þar starfandi rannsóknahópur í fléttufræði.